Í september er tímabilinu fyrir sumarstörf lokið og haustmyrkrið er að leggjast yfir okkur. Þetta felur þó í sér ný starfstækifæri fyrir þig sem hefur áhuga á árstíðabundnum störfum í haust og vetur. 

Við gerum ráð fyrir að alls um 150 umsækjendur fái atvinnutilboð gegnum Nordjobb í haust og vetur. Hér að neðan getur þú séð yfirlit yfir tegundir starfa sem hægt er að sækja um í haust og vetur. 

Noregur

Noregur er landið þar sem flest störf eru í boði á okkar vegum. Hér er í boði úrval af spennandi störfum á fjallahótelum og skíðasvæðum yfir vetrartímann. Við leitum, til dæmis, að starfsfólki í skíðaverslun og heilsunuddurum í TrysilFyrir þig sem vilt vinna í haust erum við einnig með hótelstörf þar sem möguleiki er á að byrja vinna strax..

Sjá laus störf í Noregi

Grænland 

Á Grænlandi erum við aðallega með sumarstörf en nú er líka hægt að sækja um nokkur störf í haust. Sæktu um starfið á veitingastað á hóteli eða starf við ræstingar Kangerlussuaq sem fyrst.

Sjá laus störf á Grænlandi

Ísland

Á Íslandi eru laus störf í hótelbransanum, í Höfn og fyrir utan Höfn, hægt er að fá ráðningu sem byrjar í haust og endar í janúar/febrúar. 

Sjá laus störf á Íslandi

Svíþjóð 

Í Svíþjóð leitum við, meðal annars, að finnskumælandi aðilum til starfa við umönnun aldraðra sem og dönsku- og norskumælandi aðilum til starfa í þjónustuveri Gautaborg og StokkhólmiYfir vetrartímann eru einnig í boði störf á skíðasvæði í Sälen.

Sjá laus störf í Svíþjóð

Finnland 

Nokkur störf eru í boði í Finnlandi í haust, í heilbrigðiskerfinu og leikskóla ásamt þýðingarstarfi.

Sjá laus störf í Finnlandi