| Sisimiut, Ilulissat, Paamiut, Maniitsoq, Upernavik m.fl. | |
| Um það bil 100 störf | |
| Fiskveiðar, fiskvinnsla, hótel, veitingastaðir, ferðaþjónustufyrirtæki og umönnun á dvalarheimilum | |
| 18.000-23.000 DKK | |
| Um það bil 4000 DKK í persónuafslátt á mánuði. 42-45% skattur af afganginum. |
Nordjobb á Grænlandi
Grænland er langstærst að flatarmáli af Norðurlöndunum en um 80% þess er þakið jökli. Að vera Nordjobbari á Grænlandu er fyrir alla sem vilja upplifa alvöru ævintýri og skapa dýrmætar minningar. Opinbert tungumál á Grænlandi er grænlenska, en flestir tala einnig dönsku. Margir vinnustaðir eru í afskekktum þorpum en jafnvel í stærri bæjum er hin stórbrotna náttúra aldrei langt undan. Í sumum litlum þorpum eru örlítið öðruvísi innviðir en við eigum að venjast hér heima, til dæmis ekki almennilegt fráveitukerfi eða jafn hraðvirkt internet. Engir tveir bæir eru tengdir með vegum heldur þarf að fljúga eða sigla á milli og geta fjarlægðirnar verið mjög langar. Aftur á móti býður Grænland upp á magnaða náttúru með jöklum, ísjökum, spegilsléttum fjörðum og endalausum fjöllum, sérstöku dýralífi í hafi og á landi - allt sem mun gera upplifun þína hér einstaka.
Bankareikningur
Samkvæmt Grønlandsbanken er hægt að stofna bankareikning áður en maður kemur til Grænlands ef maður er með danskt CPR-númer (kennitölu). Annars færðu danska kennitölu þegar þú flytur lögheimilið til Grænlands (ef þú hyggst dvelja lengur en 3 mánuði) eða þegar þú sækir um skattkort. Þegar þú hefur fengið kennitölu getur þú farið í bankann og stofnað reikning.
Ef þú átt danskan bankareikning getur þú fengið laun borguð inn á danska reikninginn og þarft því ekki að stofna grænlenskan.
Skattur
Til að starfa á Grænlandi þarftu að sækja um skattkort. Ef þú dvelur lengur en sex mánuði á Grænlandi berðu fulla skattskyldu, þ.e. þér ber að gefa upp og greiða skatt af öllum tekjum þínum, líka þeim sem þú aflar í öðru landi. Ef þú dvelur skemur en sex mánuði á Grænlandi berðu takmarkaða skattskyldu, þ.e. þú greiðir aðeins skatt af þeim tekjum sem þú aflar á Grænlandi. Flestir Nordjobbarar bera takmarkaða skattskyldu.
Til að sækja um skattkort þar maður að vera með danska kennitölu (CPR-númer). Ef þú dvelur skemur en sex mánuði á Grænlandi og hyggst ekki flytja lögheimili þitt getur þú fengið kennitölu í gegnum skattayfirvöld á Grænlandi. Þá þarf að hafa samband við þau á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með upplýsingum um vinnuveitanda, starfstímabil og auðkenningu. Áður en þú ferð til Grænlands til að vinna á vegum Nordjobbs færðu allar upplýsingar um hvaða eyðublöð þarf að fylla út til að sækja um skattkort.
Þjóðskrá
Norrænum borgurum er frjálst að flytja til Grænlands, dvelja þar og starfa. Þér er einungis skylt að tilkynna um flutning ef þú hyggst dvelja lengur en sex mánuði, í síðasta lagi fimm dögum eftir komu til Grænlands. Þetta gerir þú á skrifstofu sveitarfélagsins sem þú flytur til á Grænlandi. Ef þú hyggst dvelja lengur en þrjá mánuði áttu rétt á því að skrá þig inn í landið og fá kennitölu.
Almenningssamgöngur
Almenningssamgöngur á Grænlandi eru ekki jafn virkar og á hinum Norðurlöndunum. Það er þó strætó í stærri bæjum og ferjur á milli nálægra bæja. Oft er smæð bæjanna þó mikill kostur þar sem auðvelt er að komast leiða sinna gangandi og annars sér vinnuveitandi um að koma starfsmanni til og frá vinnu.
Sjúkratryggingar
Þar sem fjarlægðir á Grænlandi eru gríðarlegar miklar er mjög mikilvægt að maður geri ýmsar ráðstafanir áður en maður flytur þangað. Það á sérstaklega við ef heilbrigði manns er ekki upp á sitt besta. Mælt er með ferðatryggingu fyrir fólk sem er tímabundið í landinu. Svoleiðis trygging nær yfir öll útgjöld í sambandi við skyndileg veikindi, almenna læknisaðstoð, slys, lyf og ferðakostnað vegna þess. Tryggingin nær líka yfir opinberar og einkareknar tannlæknastofur.
Verð
Leiga á herbergi: Um það bil 2000 DKK á mánuði
Strætómiði: 20 DKK (Nuuk)
Mánaðarkort í strætó: 580 DKK (Nuuk)
Bíómiði: 105 DKK
