| Tórshavn, Vestmanna, Sandoy, Vágur, m.fl. | |
| Um það bil 65 störf | |
| Garðyrkja, hótel, ferðaþjónusta, verksmiðjur, fiskvinnsla, bensínstöðvar | |
| 20.000-26.000 DKK | |
| 225,41 DKK á dag eru skattfrjálsar. 42% skattur af afganginum. |
Nordjobb í Færeyjum
Færeyjar eru lítið eyjasamfélag sem samanstendur af 18 eyjum, þar af er búið á 17. Hin stórbrotna náttúra laðar að ferðamenn og Nordjobbara með grænu fjöllum sínum, sem rísa upp úr hafinu, friðsælu timburhúsum með torfþaki og ríku fuglalífi. Færeyskan er náskyld íslenskunni en allir Færeyingar tala dönsku og skilja yfirleitt líka norsku og sænsku. Dæmigert fyrir færeyska menningu er þjóðdansinn (keðjudansinn), en líklegt er að þú sem Nordjobbari munir sjá hann dansaðann á einhverri af þeim mörgu hátíðum sem haldnar eru á sumrin í Færeyjum.
Höfuðborgin Þórshöfn, með rúmlega 20.000 íbúum, hún virkar stærri en hún er í raun því þar er gnótt af góðum veitingastöðum, líflegu næturlíf og áhugaverðum söfnum. Nordjobbarar fyrir utan “Havn” (sem Þórshöfn er gjarnan kölluð) fá aðeins hefðbundnari færeyska upplifun, í litlum bæjum og þorpum, þar sem maður er enn nær hinni stórkostlegu náttúru og hefðbundinni menningu.
Bankareikningur
Til þess að fá útborguð laun þarf maður að stofna færeyskan bankareikning. Maður getur ekki fengið laun borguð inn á bankareikning í sínu heimalandi. Til að stofna bankareikning þarf maður að vera kominn með færeyska kennitölu áður en maður fer í bankann. Það þarf að mæta í bankann til að stofna reikning. Stærstu bankarnir í Færeyum eru Betri og Bank Nordik.
Skattur
Fólk sem starfar tímabundið í Færeyjum (færri en 180 daga) borgar 42% í skatt + 1% í önnur gjöld. Nordjobb hefur gert sérstakan samning við skattayfirvöld í Færeyjum og fá Nordjobbarar þá 260,03 DKK af launum sínum á dag skattfrjálst. Þessi skattaafsláttur er borgaður út þegar starfstímabilinu er lokið. Þegar þú hættir í starfi gerir þú eða vinnuveitandi þinn grein fyrir heildarlaunum á tímabilinu í eyðublaði frá Nordjobb. Til að eiga rétt á þessum skattaafslátti þarf dvöl í Færeyjum að vera styttri en 180 dagar á 12 mánaða tímabili. Allt tímabilið telst með, jafnvel þótt maður ferðist heim í styttri tíma. Fjöldi vinnudaga skal vera í mesta lagi 100 á almanaksári.
Þjóðskrá
Ef áætluð dvöl í Færeyjum er lengri en 180 dagar þarf maður að flytja lögheimili sitt til Færeyja og fá færeyska kennitölu (p-tal). Ef áætluð dvöl er styttri en 180 dagar þarf maður að sækja um að fá gervikennitölu, vinnuveitandi getur gert það. Tilkynna þarf flutning í síðasta lagi fimm dögum eftir komu til Færeyja á skrifstofu sveitarfélagsins. Mundu eftir skilríkjum.
Almenningssamgöngur
Sjúkratryggingar
Ef þú ert ríkisborgari norræns ríkis hefur þú sömu réttindi til heilbrigðisþjónustu og íbúar Færeyja.
Verð
Leiga af herbergi: 2000-4000 DKK á mánuði
Máltíð á ódýrum veitingastað: 130 DKK (Torshavn)
Almenningssamgöngur: Ókeypis í Tórshavn, annars 20-100 DKK
Bíómiði: 85-95 DKK
